Rosss hilla 4050x1570x525mm
kr. 69.230 (með vsk.)
Rosss Unizink hillukerfi
Rosss hillukerfinu er hægt að raða saman og útbúa hillu sem smellur inn í þitt pláss hvort sem það er fyrir lagerinn, bílskúrinn eða geymsluna.
Kerfið er sterkt og einfalt að taka það í sundur og breyta því eða flytja milli staða.
Sérstaða Unizink felst í sterkari endakjömmum á þverslám sem skemmast ekki þegar td. þarf að færa hillur eða breyta hæðum aftur og aftur, einnig eru festipunktarnir á þeim 75mm í sundur sem eykur mikið stöðugleikann til hliðana og minnkar þörf á kross stífum í kerfinu.
Við afhendum kerfið með samsettum hliðarstigum ( göflum ) og þarf því bara að smella þverslám og botnum í þegar setja á upp kerfið.
-
Hæðir í boði: 2025, 2475, 3000 og 4050 mm
-
Hillubreiddir í boði (bil milli hæðarstiga): 860, 1160, 1460 og 1760 mm
-
Burðargeta á hillum er frá 100 upp í 250kg , eftir lengdum og dýptum hverju sinni.
-
Dýptir í boði: 325, 525 og 725 mm
-
Aukahlutir á lager: Skilrúm í hillur og fataslár
Þessi eining er 4050x1570x525 mm (HxBxD) með sex hillum
Ef þú villt fá tilboð í þitt kerfi þá getum við aðstoðað við það bæði með útfærslur og uppsetningu.
Gerum föst verðtilboð.














