Starfsmannaskápur einfaldur

kr. 38.582 (með vsk.)

Starfsmannaskápur úr stáli frá Intra Svíþjóð.

Þessi er einfaldur, ein hurð á breidd og hæð, gott pláss fyrir hvers kyns fatnað. Slá með krókum er rétt fyrir neðan hillu efst þar sem hægt er að geyma smáhluti. Góð loftun er á þessum skápum þar sem hurðir eru með ristum að ofan og neðan.

Athugið að lykillæsing með tveim lyklum fylgja hverri hurð.

Kemur ósamsettur og er því hagstæður í flutningi, mjög auðvelt er að setja þessa skápa saman og þarf engin verkfæri til þess.

  • Ystu mál: (Lengd * dýpt * fremri hæð/aftari hæð)  350*550*1830/1920mm
  • Hallandi toppur, auðvelda þrif og koma í veg fyrir ruslasöfnun ofan á skápum.
  • Grind fyrir neðan skápa er fáanleg sem aukahlutur, sérsmíðum einnig fallegar grindur með timburbekkjum.
  • Læsingar innifaldar og tveir lyklar.
  • Eigin þyngd 25kg
  • Dufthúðaður blár og grár.

Hægt er að kaupa læsingar fyrir hengilása á þessa skápa ef þess er óskað.

    Senda fyrirspurn

    Vörunúmer: IN-71310 Flokkar: ,

    vörumerki

    Intra