SANO NEO Liftkar SAL Fold-L 170 | Rafdrifin tröpputrilla

kr. 825.881 (með vsk.)

Eftir áratugareynslu erlendis og hér á Íslandi kynnum við nýja og endurbætta útgáfu SAL tröpputrillunnar: NEO SAL.

Byggt er á gömlu endingargóðu trillunni og var hún nútímavædd m.a. með virkilega endingargóðu lithium batteríi, nýju stjórnborði og nýju ljósi sem lýsir niður í tröppur ef vinna þarf í dimmu.

Fold-L útgáfan er sú sem hefur verið mest seld af okkur frá upphafi og reynum við að eiga hana á lager – til taks fyrir þig þegar þarf.

Sveifluhandfangið er notað þegar farið er upp og niður tröppur, “Pistolgrip” handföngin ( þessi föstu sem standa út ) eru notuð þegar rölt er með vörur á jafnsléttu.

  • Burður mest 170kg ( einnig 110 og 140kg fáanlegar )
  • Klifurhraði mest u.þ.b. 29 þrep á mínútu, miðað við enga lestun, fer eitthvað hægar þegar mikill þungi er á.
  • Ending per hleðslu á rafhlöðu er u.þ.b. 2000þrep upp, m.v. enga lestun, fer eitthvað minna þegar þungi er á.
  • Hámarkshæð þrepa er 210mm
  • Ystu mál: 1350 * 480 * 280mm Hæð*breidd*dýpt – samanbrotinn pallur og handfang.
  • Eiginþyngd ca 17,2kg + 1,6kg batterý
  • Fellipallur ( Toeplate G pallur fylgir= 420*340mm )
  • Vönduð 260mm loftgúmmíhjól á kúlulegum, ( strikfrí og massív hjól fáanleg sem aukahlutur )
  • Modular design = allir partar útskiptanlegir ef þarf og eigum við mikið magn varahluta á lager.

Sjá meira á heimasíðu framleiðanda: https://www.sano-stairclimbers.com/load-transporters/products/neo-liftkar-sal

    Senda fyrirspurn

    Viðbótarupplýsingar

    Þyngd 9,5 g

    vörumerki

    SANO