Kranabóma á lyftaragaffla, stillanleg, 2300kg
kr. 499.657 (með vsk.)
Stillanleg hífibóma á lyftaragaffla – burðargeta allt að 2.300 kg
Öflug og fjölhæf hífibóma sem breytir lyftara á einfaldan hátt í krana. Hentar vel til að lyfta vélum, mótorum og öðrum þungum hlutum þar sem erfitt er að komast að með hefðbundnum lyftibúnaði.
Bómuna er hægt að lengja úr 2.260 mm í 3.500 mm og stilla upp í 40° halla í þremur stöðum, sem gefur góða möguleika á að laga hana að mismunandi verkefnum.
Bóman er sett beint upp á gaffla lyftarans og fest með læsingu. Hún er einnig með fellifót sem hægt er að læsa, sem auðveldar geymslu og uppsetningu.
Helstu eiginleikar:
- Burðargeta allt að 2.300 kg
- Burðargeta full-útdregin: 440 kg
- Stillanleg lengd: 2.260–3.500 mm
- Stillanleg upp í 40° í þremur þrepum
- Gafflavasamál: 160 × 60 mm
- Krókopnun: 29 mm
- Læsing á gaffla
- Fellanlegur og læsanlegur stuðningsfótur
- Þyngd: 204 kg
- CE-merkt
Hafðu samband við sölumann





