Kranabóma á lyftaragaffla, stillanleg, 2300kg

kr. 499.657 (með vsk.)

Stillanleg hífibóma á lyftaragaffla – burðargeta allt að 2.300 kg

Öflug og fjölhæf hífibóma sem breytir lyftara á einfaldan hátt í krana. Hentar vel til að lyfta vélum, mótorum og öðrum þungum hlutum þar sem erfitt er að komast að með hefðbundnum lyftibúnaði.

Bómuna er hægt að lengja úr 2.260 mm í 3.500 mm og stilla upp í 40° halla í þremur stöðum, sem gefur góða möguleika á að laga hana að mismunandi verkefnum.

Bóman er sett beint upp á gaffla lyftarans og fest með læsingu. Hún er einnig með fellifót sem hægt er að læsa, sem auðveldar geymslu og uppsetningu.

Helstu eiginleikar:

  • Burðargeta allt að 2.300 kg
  • Burðargeta full-útdregin: 440 kg
  • Stillanleg lengd: 2.260–3.500 mm
  • Stillanleg upp í 40° í þremur þrepum
  • Gafflavasamál: 160 × 60 mm
  • Krókopnun: 29 mm
  • Læsing á gaffla
  • Fellanlegur og læsanlegur stuðningsfótur
  • Þyngd: 204 kg
  • CE-merkt

Hafðu samband við sölumann

    Senda fyrirspurn

    vörumerki

    Intra

    Share