Gámabrú / Skábraut – Heitgalv ísl. smíði
kr. 940.000 (með vsk.)
Gámabrú / gámasliskja Heavy Duty – 6.500 kg
Íslensk smíði.
Mjög sterkbyggð gámabrú fyrir gaffallyftara, ætluð til að brúa bilið frá jörðu upp í gám og auðvelda öruggan akstur inn og út úr gámum.
Brúin er smíðuð úr öflugri stálgrind og akstursflöturinn er úr opnu stálristarefni sem veitir gott grip og hleypir vatni, snjó og óhreinindum í gegn.
Gámabrúin er í einu stykki og búin gaffalvösum að framan svo auðvelt sé að færa hana til með lyftara. Öll stálgrindin, ristarefni og suður eru heitgalvanhúðuð fyrir góða tæringarvörn og langan endingartíma.
Helstu eiginleikar:
- Burðargeta: 6.500 kg
- Breidd: 2.200 mm
- Lengd ristaflatar: 2.000 mm
- Heildarlengd: 2.350 mm
- Hæð upp í gám: 180 mm
- Stálplata nær 180 mm inn á gámgólf
- Eiginþyngd: 292 kg
- Akstursflötur úr opinni, hálkuvarinni stálrist
- Sterkbyggð grind úr flatjárni og stálprófílum
- Gaffalvasar til að færa brúna með lyftara
- Heitgalvanhúðuð fyrir notkun innan- og utandyra
- Smíðuð af okkur fyrir mikla og krefjandi notkun
Hafðu samband við sölumann






