AC-SD20PHL-A Lyftutjakkur loftvirkur – festisett innifalið

kr. 830.060 (með vsk.)

Sérstakur tjakkur ætlaður fyrir skoðunarstöðvar og staði þar sem hraði skiptir lykilmáli.

Þessi er með loftvirkni í útskotunum líka, sjá myndband að neðan. Fjarstýring við lyftustýringu gefur möguleika á því að slaka bíl niður á tjakknum um leið og lyftu er slakað niður.

Festisett fyrir flest-allar lyftur innifalið í verði, einungis þarf að gefa upp lyftugerð eða þá mæla upp lyftu samhliða pöntun.

  • Lyftigeta 2000kg
  • Lyftislaglengd ( stroke ) 250mm
  • Tveir snerlar slaka niður, annar er fyrir slökun og lyftingu og hinn er fyrir afléttingu læsingar.
  • Joystick stýripinnar fyrir útskot
  • Fjarstýring á slökun sem er hægt að staðsetja annarsstaðar en við tjakk.
  • Vinnur á 6-10bar þrýstilofti
  • Eiginþyngd 120kg

Málblað fyrir lyftur má finna hér:

Málblað ( .pdf )

    Senda fyrirspurn

    Vörunúmer: AC-SD20PHL-A Flokkar: ,

    vörumerki

    AC-Hydraulic