AC-65-1 lofttjakkur fyrir vinnuvélar 65t

kr. 645.149 (með vsk.)

Vinnuvélatjakkur fyrir stærri tæki. Er með mikla mikla lyftigetu og tvær sverar framlengingar fylgja. Tjakkurinn kemur á tveim stórum loftgúmmíhjólum sem auðvelda færslu til og frá verkstað jafnvel þó svo að fara þurfi yfir malarplan td. Þessir tjakkar eru hannaðir fyrir mikla og….. skítuga…. notkun í verstu aðstæðum.

  • Lægsta lyftihæð er 245mm ofan á lyftipunkt
  • Lyftir 65tonnum í 380mm
  • Eiginþyngd 95kg
  • – Öll helstu mál má sjá á mynd hér til hliðar.
  • Handfang læsanlegt í 4 hallastillingum
  • Nýtt og endurbætt handfang frá fyrri árgerðum, nú eru þrýstihnappar í stað sveifar.
  • Þrýstiloft þarf til þess að nota tjakkinn, kjörþrýstingur 9 – 10bör.
  • “Dead mans release” = Ekki hægt að slaka svo hratt að bíll detti hratt niður.
  • Innbyggður öryggisloki sem leyfir tjakknum ekki að lyfta meiri þyngd en uppgefið er.
  • Fylgja tvær framlengingar: 1stk. 100mm og 1stk. 200mm

Allar vörur frá AC eru framleiddar í Danmörku, þetta er þeirra stolt og gera þeir sitt besta í því að láta framleiða íhluti og annað innanhúss.

3ja ára ábyrgð er á öllum hlutum en upp í 10 ára ábyrgð á völdum hlutum, eins og td. grindar og burðarhlutum.

Sjá hér um ábyrgð AC: http://www.ac-hydraulic.dk/en/sales-and-technical-literature/warranty/

    Senda fyrirspurn

    Vörunúmer: AC-65-1 Flokkar: ,

    vörumerki

    AC-Hydraulic