AC-65-1H hærri lofttjakkur fyrir vinnuvélar 65t
kr. 814.440 (með vsk.)
Vinnuvélatjakkur fyrir stærri tæki. Er með mikla mikla lyftigetu, extra háa lyftihæð og tvær sverar framlengingar fylgja. Tjakkurinn kemur á tveim stórum loftgúmmíhjólum sem auðvelda færslu til og frá verkstað jafnvel þó svo að fara þurfi yfir malarplan td. Þessir tjakkar eru hannaðir fyrir mikla og….. skítuga…. notkun í verstu aðstæðum. Athugið að með framlengingunum er hægt að lyfta alveg upp í 1025mm samtals lyftihæð.
- Lægsta lyftihæð er 425mm ofan á lyftipunkt
- Lyftir 65tonnum í 725mm
- Eiginþyngd 138kg
- – Öll helstu mál má sjá á mynd hér til hliðar.
- Handfang læsanlegt í 4 hallastillingum
- Nýtt og endurbætt handfang frá fyrri árgerðum, nú eru þrýstihnappar í stað sveifar.
- Þrýstiloft þarf til þess að nota tjakkinn, kjörþrýstingur 9 – 10bör.
- “Dead mans release” = Ekki hægt að slaka svo hratt að bíll detti hratt niður.
- Innbyggður öryggisloki sem leyfir tjakknum ekki að lyfta meiri þyngd en uppgefið er.
- Fylgja tvær framlengingar: 1stk. 100mm og 1stk. 200mm
Allar vörur frá AC eru framleiddar í Danmörku, þetta er þeirra stolt og gera þeir sitt besta í því að láta framleiða íhluti og annað innanhúss.
3ja ára ábyrgð er á öllum hlutum en upp í 10 ára ábyrgð á völdum hlutum, eins og td. grindar og burðarhlutum.
Sjá hér um ábyrgð AC: http://www.ac-hydraulic.dk/en/sales-and-technical-literature/warranty/