KM08200 veltiborð fyrir plötur
kr. 502.920 (með vsk.)
Sérhæfður plötuvagn með velting.
Oft kallað ” gifsplötuborð ” eða ” veltiborð ” – Sérhannaður vagn fyrir flutning og vinnslu á plötum. Sama hvort um er að ræða gifs, timbur, plast eða stálplötur. Hægt er að raða plötum upp á vagninn, velta borðinu upp og gera það lóðrétt, þá passar það í gegn um hurðagöt, síðan þegar inn er komið er hægt að velta borðinu aftur niður og saga og vinna við plöturnar í réttri vinnuhæð.
Þarfaþing á flesta vinnustaði, þó ekki hentugt á skrifstofuna – eða hvað ?
Sænsk gæða framleiðsla frá vinum okkar í Kongamek.
- Ystu mál með plötu lóðrétta: 1900 * 700 * 1490mm L*B*H
- Burðargeta 500kg
- Plötustærð 1860 * 1170mm
- Vinnuhæð með plötu lárétta: 900mm
- Eigin þyngd 105kg
- Hjól eru: 160mm burðarhjól og 300mm sprungufrí loftgúmmíhjól.
Þessi vagn afhendist samsettur.