Starfsmannaskápur einfaldur / tvær hurðir á hæð
kr. 43.121 (með vsk.)
Starfsmannaskápur úr stáli frá Intra Svíþjóð.
Þessi er einfaldur, ein hurð á breidd og tvær á hæð, gott pláss fyrir hvers kyns fatnað. Slá með krókum er efst í skáp. Góð loftun er á þessum skápum þar sem hurðir eru með ristum að ofan og neðan.
Athugið að lykillæsing með tveim lyklum fylgja hverri hurð.
Kemur ósamsettur og er því hagstæður í flutningi, mjög auðvelt er að setja þessa skápa saman og þarf engin verkfæri til þess.
- Ystu mál: (Lengd * dýpt * fremri hæð/aftari hæð) 350*550*1830/1920mm
 - Hallandi toppur, auðvelda þrif og koma í veg fyrir ruslasöfnun ofan á skápum.
 - Læsingar innifaldar og tveir lyklar.
 - Grind fyrir neðan skápa er fáanleg sem aukahlutur, sérsmíðum einnig fallegar grindur með timburbekkjum.
 - Eigin þyngd 25kg
 - Dufthúðaður blár og grár.
 
Hægt er að kaupa læsingar fyrir hengilása á þessa skápa ef þess er óskað.
11 á lager
				





